TúttíFrúttí

litla rúna segir frá

12.10.2006 10:34:10 / Heiðrún

Tengdó í heimsókn

Smá hausttiltekt í gangi og um að gera að breyta aðeins bloggsíðunni
sinni...er ekki alveg búin að ákveða samt hvort ég hafi síðuna svarta.

Nú er ég aftur orðin heimav. húsm. ...Raggi farinn aftur til vinnu og
foreldrar Ragga farin aftur til Íslands. Við tókum það bara rólega
daginn sem þau komu til landsins enda þreytt eftir morgunflugið. Á
föstudaginn kíktum við í bæinn í búðarrölt og stoppuðum í Kulturhuset í
kaffi, þótt ótrúlegt sé þá var ég að koma þar inn í fyrsta skipti8| Við
vorum búin að panta bíl fyrir helgina svo við ákváðum að keyra til
Sigtuna á laugardaginn (rosalega krúttlegur gamall bær) og fundum svo
veitingastað rétt hjá okkur sem við borðuðum á um kvöldið. Sunnudaginn
keyrðum við um skerjagarðinn, byrjuðum með hádegismat í Waxholm,
bílferju yfir til Rindö, þvert yfir hana og svo bílferju til
Värmdölandet, þaðan til Gustavsberg og svo inní Stokkhólm.
Mánudagurinn var tekinn í bæjarrölt sem endaði með dýrindismáltíð í
Gamla Stan. Þetta var svona heimsóknin í stuttu máli...það var
æðislegt að hafa þau, mikið spjallað, hlegið og skálað í hvítvíni :) og
auðvitað náði Helena alveg að bræða þau uppúr skónum með
sólskinsbrosinu!
Spurning að ég fari að setja inn svona lítinn Helenudálk með fréttum af henni...:$
En núna er skvísan alveg að verða 5 mánaða, líður rosalega vel og
staldrar mjög stutt í hverri fatastærð (góður mömmurjóminn). Í gær
fékk hún í fyrsta sinn að prufa eitthvað annað bragð en mjólkina þegar
við gáfum henni bananagraut, þó að hún japlaði bara á svona 1-2
teskeiðum þá virtist henni líka ágætlega, grautnum var allavega ekki
skilað tilbaka ;)
Hvernig er fólk annars að fíla að lesa hvítt á svörtu?

Jóna skrifaði
Hæ, þetta er flott, samt frekar svart, en annars mjög flott. Mér líst vel á það að þú verðir með svona undirsíðu eða eitthvað svoleiðis með fréttum af dúllunni. Kveðja
Alla frænka skrifaði
Hún er flott og gott að lesa hvíta stafi á svörtu kv Alla frænkA

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 677 dögum
Förum til Flórída
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Myndasíða