TúttíFrúttí

litla rúna segir frá

29.07.2007 17:21:26 / Heiðrún

Nýjasta nýtt nýtt

Alveg kominn tími á nýtt blogg.

Í dag er síðasti dagurinn minn í sumarfríi:( en er samt búin að eiga æðislega gott frí síðustu tvær vikurnar með Helenu og svo við öll í fríi síðustu vikuna.

Þetta frí var auðvitað alveg jafn fljótt að líða eins og öll önnur frí sem maður fer í en sem betur fer er ég í vinnu sem mér þykir svaka skemmtileg svo ég er tilbúin að byrja aftur að vinna.

Við náðum að fara í eina útilegu í fríinu...við fórum með Kidda, Maríu og börnum á Snæfellsnes. Við gistum frá lau-mán á Arnarstapa og gistum svo síðustu nóttina í Hraunsfirði þar sem allir prufuðu að veiða aðeins. En það var mjög vel heppnuð ferð, æðislegt veður og ekkert mál að ferðast með smábarn eins og við héldum.

Það er búið að vera svo geggjað veður í sumar að öll familían er komin með ágætis brúnku þó Raggi mest bara svona eins og vanalega;)

Svo gerðist sá merkilegi dagur í vikunni að við skrifuðum undir kaupsamning á okkar fyrstu íbúð saman. Við erum s.s. eftir langa, langa leit og spekúleringar búin að kaupa íbúð í kórahverfinu í Kópavogi sem við erum ótrúlega ánægð með og getum ekki beðið eftir að flytja inn í...en við þurfum að bíða aðeins lengur því við fáum ekki afhent fyrr en í október.

Helena er svaka hress orðin eftir þráláta eyrnabólgu sem endaði með sprunginni hljóðhimnu, en eyrun í fínu lagi sem betur fer og þurfti ekki rör. Hún er svo komin með 7 tennur þar af 1 jaxl og 8-unda alveg að koma upp. Svo ákvað hún eftir langa bið að taka sín fyrstu skref í liðinni viku...allebara heil 9 skref og erum við ekkert smá stolt af litla gönguhrólfinum okkar. Hún er reyndar svo uber varkár að hún er ekkert farin að sleppa alveg takinu og hlaupa út um allt...en það er að koma svona hægt og rólega. Einnig rann upp sú merkisstund í lífi Helenu að hún varð Stóra-Frænka...eignaðist lítinn frænda 18. júlí :haha:

Annars þá er ég loks búin að setja inn myndir fyrir Maí og læt vita þegar ég set inn Júní albúm en það verður líklega mjög fljótlega:)

Góða verslunarmannahelgi allihoppa!


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 20:04:59 / Heiðrún

1 árs

Vá hvað eitt ár er fljótt að líða, ég er varla að trúa því að litla snúllan mín hún Helena hafi komið í heiminn fyrir alveg einu ári síðan.  Litla, litla krílið sem núna er farin að bruna um skríðandi, standa upp við allt sem hún kemur auga á, borða á við fullorðinn;) og tala út í eitt var með fyrstu afmælisveisluna sína í dag og bauð fjölskyldunni og vinum.  Hún fékk fullt af flottum gjöfum eins og dót, föt, bók og kerru.  Hún fékk sér að bragða á öllum veitingunum og meirað segja fékk lítinn bita af afmæliskökunni...og var ekkert smá ánægð með það.  Stóra félagsveran var svaka ánægð með daginn og steinrotaðist þegar síðustu gestirnir fóru.

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 20:01:25 / Heiðrún

Íbúðaleit, afmæli og myndir

Jæja lífið er komið í nokkuð góða rútínu, litla snúllan orðin hress eftir nánast stanslaus veikindi frá því við fluttum til landsins...en við búum ennþá hjá tengdó, eins og við reyndar bjuggumst við að þurfað vera hjá þeim í nokkra mánuði.  Við erum á fullu að kíkja á íbúðir, reyndar bara á netinu en ætlum að farað drífa okkur að fara á heimilin og skoða.  Við erum orðin mjög spennt fyrir nýja akrahverfinu(arnarneshæðin) hérna í Garðabænum en eigum ennþá eftir að skoða hvort við getum keypt þar eða ekki.  Reyndar var frekar fyndið að þegar við fórum að skoða hverfið þá sáum við ljós kveikt í einu húsinu...og í glugganum var Jón og Beta, við kíktum inn og voru þau að flytja inn í svaka flotta íbúð þarna.

Maður er strax farinn að sakna Stokkhólms og ekki bætir úr þegar maður sér veðurspána :( hver veit nema við skreppum í heimsókn í haust eða vor.

Svo  er Helena orðin 11 mánaða og ég er varla að trúa því að það sé að verða orðið ár frá því hún kom í heiminn...tíminn flýýýgur áfram á leifturhraða.  Það vill svo til að hún á afmæli á frídegi 17. maí, mjög þægilegt og kanski verður jafnvel gott veður svo við getum verið með garðafmæli...verst að maður getur aldrei treyst á það.

En það eru loksins komnar inn nýjar myndir inn á Helenu-Gallerý s.s. myndir frá því í febrúar og svo mun ég setja nýjar myndir inn í vikunni frá því í Mars.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 20:23:20 / Heiðrún

Back on the klake

Jiii...barasta búin að fá spark í rassinn...já það þurfti víst eitthvað svo ég myndi nú skrifa aftur inn hérna.  Í tilefni að við erum komin aftur til Íslands þá ákvað ég að ég yrði aðeins að fríska uppá bloggsíðuna mína.

Við erum núna búin að vera á klakanum í rúman mánuð, ég og Raggi byrjuð að vinna og Helena komin í pössun hjá dagforeldrum.  Allt er búið að ganga svaka vel, Raggi byrjaði að vinna nánast um leið og flugvélin lenti en ég fór strax í dagmömmu leit fyrir Helenu.  Eftir ca 3 símtöl þá var ég komin með dagforeldra í Garðabænum og bara 3 mín. frá þar sem við búum núna...ekkert smá heppin, var búin að heyra að það tæki forever að fá pláss.  Á meðan Helena var í aðlögun á dagheimilinu þá var ég í atvinnu og launaviðtölum...aðlögunin gekk svaka vel og eftir þá viku þá byrjaði ég að vinna í Dorothy Perkins í Smáralindinni.  

Eftir aðeins 3 daga í vinnu þá lagðist ég í flensu og Helena líka.   Þegar ég var að jafna mig á þriðja degi þá fékk ég aðra flensu...ælupest s.s.  hve óheppin getur maður verið...og ég sem hélt ég væri hálf ónæm fyrir ælupest þar sem ég hef ekki fengið svoleiðis frá því ég var krakki.  Raggi náði sér í pestina líka og einnig tengdaforeldrarnir.  Greyi Helena er samt búin að vera veik lengst af okkur...hiti í 8 daga :( við vonum að núna fari hún loksins að ná sér. 

 Þegar við fengum búslóðina okkar í hendurnar þá kipptum við inn nokkrum hlutum eins og nýja flotta lcd skjánnum okkar og komum fyrir í stofunni hjá tengdó...tengdum svo tölvuna okkur ofl.  Svo það fer að styttast í að ég setji inn nýjar myndir á Helenusíðu.

Ætla að segja þetta nóg í bili...enda tengdamamma að kalla í mat...hehe "hótel tengdó" ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 11:32:38 / Heiðrún

Ísland eftir 6 daga

Jæja, þá er maður kominn á flug með að pakka saman búslóðinni okkar...svo er bara að reynað selja sem mest svo við þurfum að flytja sem minnst með okkur. Vorum rétt áðan að selja svefnsófann okkar og vonumst eftir að selja rúmið, baðherbergisinnréttinguna og kanski e-ð fleira... ef við náum því ekki fyrir föstudag þá fer dótið bara á haugana.

Við fórum í gær í smá verslunarleiðangur niðrí miðbæ, keyptum föt og fleira á familíuna, eigum svo von á sendingu frá H&M í vikunni með snjógalla og pollagalla og fleira fyrir Helenu skvís, nota tækifærið meðan maður getur verslað virkilega ódýrt áður en við flytjum ;)

Helena er hress sem alltaf og bara vika í 9 mánaða afmælið. Aðalspurningin sem við fáum þessa dagana er hvort hún sé nú ekki farin að skríða...nei, ekki á fjórum allavega, hún nær samt að mjaka sér afturábak og í hringi og svona. En aðalsportið er að fá að labba, ætli hún labbi ekki bara áður en hún byrjar að skríða...kæmi okkur ekki á óvart. Hún er líka farin að borða aðeins fjölbreyttari fæðu eins og brauð og jógúrt...og er þá brauð með smjöri, eplamauki eða kæfu í uppáhaldi. Í gær fékk hún svo fyrstu klippinguna...við fórum nú ekkert á neina stofu heldur var tekin upp hárklippigræjan á heimilinu og pabbinn sá um að renna henni yfir höfuðið á Helenu :)

Svo er hægt að kíkja á myndir af dúllunni okkar frá því í janúar hér.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 19:09:07 / Heiðrún

Flutningur

Jaså! þá erum við búin að ákveða hvenær við flytjum frá Svíþjóðinni, en hinn útvaldi dagur er 17. febrúar :D Ég er varla að trúa því að við séum búin að vera hérna í tvö og hálft ár, mér finnst svoooo stutt síðan við fluttum hingað.
Ég er byrjuð svona í rólegheitum að pakka niður búslóðinni...ekkert stress enda ekki í fyrsta sinn sem ég flyt ;) Ég er búin að setja eitthvað af húsgögnunum okkar á sölu á netinu og svo buðum við næstu leigjendum að íbúðinni okkar að kaupa gardínurnar, ljósin og fleira...hehe...því minna sem við þurfum að pakka því betra...eller hur!!

Skrifa meira fljótlega!

Og endilega ef einhver vill heimsækja okkur eða bjóða okkur í heimsókn hérna í Svíþjóð áður en tíminn er útrunninn þá hafið þið 2 vikur :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 22:50:49 / Heiðrún

Jól, áramót og fleira

Úff það er orðið svo langt síðan ég bloggaði síðast og svo margt búið að gerast, mismerkilegt kanski en ég nenni ekki að setja neina langloku inn.

Við höfðum það alveg yndislegt um jólin og btw. takk fyrir allar jólakveðjurnar! Tímanum var eitt í heimsóknir, jólaboð og át svona til að nefna það helsta ;) En það var frekar erfitt að fara frá Íslandi...okkur er farið að hlakka mikið til að flytja aftur á klakann í febrúar, það er alveg ótrúlegur munur að hafa fjölskylduna og vinina nálægt sér.

Tímanum var líka eitt nytsamlega þar sem Raggi fór í atvinnuviðtal og var ráðinn hjá TM Software...svo komst ég líka að því að ég á ekki eftir að eiga í neinum vandræðum með að fá vinnu þegar ég vil byrja aftur að vinna :)

Þar sem við erum búin að ákveða að kaupa okkur íbúð í vor þá er ég á fullu að fylgjast með fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu og nördinn sem ég er finnst fátt skemmtilegra en að kíkja á fasteignavef mbl og spá og spekúlera :haha:

Helena breytist svooo hratt og það er ótrúlega gaman að fylgjast með því. Nýlega kom 3:ja tönnin og 4:ða rétt ókomin (framtennurnar-uppi). Hún er talandi allan daginn og segir skemmtilegu orðin mamma og pabba eins og henni sé borgað fyrir það ;) Svo styrkist hún alltaf meira og meira og er alltaf að reynað setjast upp þegar hún liggur útaf...spáum að það sé ekki langt í að hún fatti að hún geti sest upp sjálf, staðið sjálf og jafnvel fari að skríða, eða mjaka sér áfram um íbúðina. Henni finnst líka gaman að kinka kolli, knúsast og narta í táslurnar. Hún hafði voða gaman að öllum jólapökkunum þeas öllum fínu umbúðunum utan um gjafirnar hehe:) Og svo steinsvaf dúllan okkar um áramótin en vaknaði þegar allar sprengjurnar voru búnar...þetta var s.s. í annað sinn sem Helena steinsefur í gegnum læti af flugeldum.

******Það eru komin TVÖ ný albúm inná Helenugallerí******


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 18:10:20 / Heiðrún

Jóla............

Bara 10 dagar þar til við förum til Íslands...ég hlakka svooo mikið til, get varla lýst því:) Við ætlum að reynað klára jólagjafainnkaupinn núna um helgina svo það verði nú ekki of mikið stress helgina áður en við förum.  En annars er maður búinn að vera bara helv. duglegur...bakaði 3 sortir af smákökum, skrifaði á jólakort og fl.
Einnig verð ég fegin að losna úr íbúðinni okkar í smátíma og fara í kyrrðina í Garðabænum...en fyrir utan hjá okkur er heljarinnar byggingarsvæði og ætlar látunum aldrei að linna og byrja þeir stundum að vinna fyrir 7 á morgnana og vinna á laugardögum líka...svo í þessari viku var byrjað að bora í veggi á ýmsum tímum dagsins...það mikið að heilinn á manni hristist nánast ;)

Ef einhver vill senda okkur jólakort eða hafa samband við okkur meðan við erum á Íslandi þá búum við í Asparlundi 6, 210 Garðabæ s:5656283 og verðum með sömu gsm númerin og vanalega, H:6951140 og R:6982100




» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 10:40:18 / Heiðrún

AfMæLiSsTeLpAn mIkLa

Það var nú ekkert plan að blogga í dag þar sem síðustu dagar hafa verið frekar viðburðarlitlir...heldur vil ég endilega segja frá því hvað ég er nú orðin gömul..ehemm..já það er komið að deginum sem ég hugsaði alltaf um þegar ég var lítil, að fólk sem væri 27 ára væri sko orðið fullorðið s.s. gamalt.  Reyndar finnst mér það eiginlega ennþá...27 er alltof stór tala fyrir mig, svo miklu miklu stærri en 26, hvernig á ég eiginlega eftir að verða þegar ég verð 30 ;)  Annars þá er þetta meira meint í gríni og er ég hæstánægð með að vera orðin 27 ára! :haha:

Deginum ætla ég að eyða með yndislegu litlu fjöllunni minni og hafa það kózý :D




» 5 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 18:15:12 / Heiðrún

Jólafílingur

Tíminn er ekkert smá fljótur að líða...er varla að trúa því að það sé kominn desember.  Þó ég sé ein með Helenu alla virka daga þá finnst mér samt alltaf vera helgi...alveg ótrúlegt.  Áður en við vitum af þá heldur leiðin uppá flugvöll og áleiðis á frónið.
Ég veit heldur ekki hvað er að gerast með mig en frá því það kom snjór einhvern tíman um daginn í örfáa daga þá er ég búin að vera í dúndur jólaskapi, held ég hafi ekki verið í svona miklum jólafílíng frá því ég var lítil:haha:
Familían fór svo í bæinn á fimmtudaginn að versla eitthvað af jólagjöfum og gekk bara nokkuð vel.  Við röltum um miðbæinn og Gamla Stan, þar sem við kíktum á jólatorgið...en okkur fannst alveg vanta snjóinn, mannmergðina og ilminn af jólaglöggi og karmellugljáðum hnetum svo planið er að kíkja aftur fyrir jól um helgi.

Helena dafnar vel eins og vanalega...er rosa hrifin að fá matarmaukið, grautinn og ekki síst hrifin af að fá heimatilbúna ávaxtamaukið frá mömmslunni ;)
Svo er komið Nóvember myndaalbúm og að þessu sinni nokkur myndbönd líka...endilega kíkið og ekki verra að fá "comment" ...já, það er hægt að commenta inná myndasíðunni :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 12:30:02 / Heiðrún

Tími á smá færslu?




Ég er orðin allt of löt að blogga þessa dagana...það gæti auðvitað verið út af því að það er ekki mikið að gerast hjá manni. En það kemur svona stundum fyrir að maður geri eitthvað annað en að hanga...

...síðasta laugardag buðu Gummi, Sveinbjörg og Ragnhildur okkur í mat ásamt Dagnýju og Gústaf...í æðislegt íslenskt lambalæri og meððí, eftirrétt, kaffi og svo sötrað vín yfir spili og spjallað...notalegt kvöld í alla staði.


Helena virtist líka hafa voða gaman að því að hitta fólk (alls engin mannafæla þar á ferð!) og þegar kom að háttatíma þá sváfu báðar dúllurnar saman í herbergi sem gekk kanski ekki alveg upp þar sem ef ein vaknaði þá vaknaði hin...fékk á tilfinninguna hvernig væri ef maður ætti tvíbura:S En þegar báðar voru glaðvaknaðar e-n tímann eftir miðnætti þá ákváðum við að trilla okkur heim.


Mér finnst alveg ótrúlegt að þegar dregur að jólum...ca í nóvember þá virðist ég alltaf eiga nánast engan pening, sérstaklega núna þegar maður er á skítaríkislaunum. En það vildi svo til að ég var að fara í gegnum reikninga og fleira, henda og sortera og hvað finn ég!...umslag með fullt af pening í...allavega nóg fyrir stóra matarkörfu í búðinni :) Síðan skemmir ekki fyrir að fyrst maður er búinn að eyða svo miklum pening í H&M yfir árið þá fáum við senda ávísun uppá 10þús kall í desember, sem ég ætla að nýta til að kaupa jólafötin í ár:haha:


Ég fór og keypti alveg uber sætan jólasveinagalla á Helenu og var að spá í að taka kanski myndir og senda jólakort...svona fyrst þetta eru nú fyrstu jólin hennar. Ef þetta tekst vel þá set ég nokkrar myndir kanski hérna inn.


Það er svo furðulegt veðrið í Stokkhólmi núna...vanalega væri frost og allt undirlagt af snjó, en það er búið að vera hálf íslenskt veður uppá síðkastið og í dag..hiti og sól, en ég er mjög fegin, þar sem ég fer labbandi út um allt þá er auðveldara að ýta vagningum ef það eru ekki snjóskaflar á götunum.

Þá er komið að smá fréttum af Helenu. Hún fór í 6-mánaða skoðunina í gær og kom alveg þvílíkt vel út. Ekki svo litla stelpan er orðin 69 cm og 8,9 kg, dugleg að safna orku...ég hef á tilfinningunni að hún byrji að skríða/labba frekar snemma. Svo var komið að bólusetningunni...risanál í lærið, hún kippti sér bara ekkert upp við það og við sem vorum tilbúin undir öskur aldarinnar. Eftir þetta fór hún í læknisskoðunina þar sem var ath. með augun, höfuðkúpuna, hreyfigetu, lungun og fleira...það merkilega var að þó læknirinn var að pota og fikta í henni þá heyrðist ekki í Helenu, lá bara afslöppuð í kjöltunni á Ragga, lækninum fannst ótrúlegt hvað hún væri rólegt barn. Hún fékk einkunnina A frá lækninum:D og foreldrarnir gætu ekki verið stoltari!











» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 16:00:23 / Heiðrún

Vetur



Það er kominn vetur í Stokkhólmi, í fyrradag var ágætt haustveður og svo var ekta íslensk hríð í gær ;) Þó það sé skítakuldi þá er allavega heiðskýrt. Eins og alltaf þegar fyrsti snjórinn kemur þá kemst ég bara í rosalegt jólaskap...langar að byrja jólagjafainnkaupin, baka og föndra. Ekki svo slæm hugmynd þar sem það er nú kominn nóvember.
Okkur var boðið í dýrindismáltið hjá Kollu og Andra síðustu helgi og var rosa gaman að hitta loksins fólk (er frekar mikið ein alla daga). Helena var ótrúlega þæg, kvartaði varla og steinsofnaði svo í rúminu hjá þeim og leyfði okkur að spjalla fram á kvöld :D

Gunnell "barnafræðingurinn" okkar var þvílíkt ánægð með Helenu þegar við fórum í skoðunina um daginn...kanski ekki búin að stækka mikið en er orðin rosalega sterk í öllum líkamanum..auðvitað var ég voða stolt af krúttinu mínu.
En þessa dagana finnst Helenu skemmtilegast að sitja, grípa í allt sem hún nær höndunum í og helst borða það líka :haha: Hún breytist svo hratt að það er nánast alltaf eitthvað nýtt að gerast á hverjum degi.
Svo er ég að fara yfir myndir og myndbönd tekin í október og reyni að setja það inná heimasíðuna hennar fljótlega.

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 19:24:45 / Heiðrún

Vííí tennur!

Þá erum við búin að ákveða að fara til Íslands 18.des. og ætlum að bóka miða í vikunni.  En að þessu sinni ætlum við að vera aðeins styttra en vanalega á klakanum þar sem að við förum bráðum að flytja þangað alfarið.
Eins og sást í síðustu færslu þá er ég búin að ákveða að hafa smá Helenudálk(þessi bleiki) svo það sé hægt að fylgjast með fréttum af henni og ég geti ennþá blaðrað um migmigmig ;)

Á laugardaginn fékk Helena í fyrsta skipti rjúkandi hita og var með hann í tvo daga en í dag er hún búin að verað hressast...þegar Raggi kom heim tók hann eftir að tvær tennur voru að birtast í neðri góm.  Svo það er spurning hvort að hitinn hafi stafað af tanntökunni...en við erum búin að verað bíða eftir að tennurnar lætu sjá sig þar sem hún nuddar í sér gómana allan daginn :)  Á miðvikudaginn förum við svo í mælingar til Gunnell og verður spennandi að sjá hvað krúttsan hefur breyst á einum mánuði.



» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 13:46:01 / Heiðrún

Helena 5 mánaða

Það er alveg hrikalegt fyrir heimav. mömmslu að fara í bakinu eins og kom fyrir mig á fimmtudaginn. Ég var að lyfta krúttinu mínu úr ömmustólnum sínum en löppin hennar festist svo ég snéri eitthvað asnalega uppá mig og fékk eins og hálfgerðan vott af þursabiti:( Þetta skánaði svona yfir daginn en svo á föstudeginum náði ég aftur að hreyfa mig eitthvað asnalega og heyrði ég furðulegt brak neðst í hryggjasúlunni og var alveg að kálast í bakinu. Ég var nú ekkert að væla yfir þessu svo Ragginn minn fór í vinnuna en stuttu seinna neyddist ég til að fá hann til að koma heim þar sem ég gat ekki einu sinni haldið á Helenu og varla stigið í lappirnar. Já og svona er ég búin að vera alla helgina, en er sem betur fer að jafna mig núna...þarf bara að passa svakalega vel upp á það hvernig ég hreyfi mig.

Og svo að skemmtilegri hlutum...Krúttið okkar er 5 mánaða í dag:D hún kippir sér nú ekki mikið upp við það þar sem lífið gengur út á að sofa, borða, leika sér og vera mesta krútt í heimi ;)

Ég er farin að tjékka á hverjum degi núna hvort Helena sé ekki að farað fá tennur því hún gerir ekki annað en að nudda á sér gómana og nýjasta "trendið" hjá henni er að sjúga á sér varirnar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 10:34:10 / Heiðrún

Tengdó í heimsókn

Smá hausttiltekt í gangi og um að gera að breyta aðeins bloggsíðunni
sinni...er ekki alveg búin að ákveða samt hvort ég hafi síðuna svarta.

Nú er ég aftur orðin heimav. húsm. ...Raggi farinn aftur til vinnu og
foreldrar Ragga farin aftur til Íslands. Við tókum það bara rólega
daginn sem þau komu til landsins enda þreytt eftir morgunflugið. Á
föstudaginn kíktum við í bæinn í búðarrölt og stoppuðum í Kulturhuset í
kaffi, þótt ótrúlegt sé þá var ég að koma þar inn í fyrsta skipti8| Við
vorum búin að panta bíl fyrir helgina svo við ákváðum að keyra til
Sigtuna á laugardaginn (rosalega krúttlegur gamall bær) og fundum svo
veitingastað rétt hjá okkur sem við borðuðum á um kvöldið. Sunnudaginn
keyrðum við um skerjagarðinn, byrjuðum með hádegismat í Waxholm,
bílferju yfir til Rindö, þvert yfir hana og svo bílferju til
Värmdölandet, þaðan til Gustavsberg og svo inní Stokkhólm.
Mánudagurinn var tekinn í bæjarrölt sem endaði með dýrindismáltíð í
Gamla Stan. Þetta var svona heimsóknin í stuttu máli...það var
æðislegt að hafa þau, mikið spjallað, hlegið og skálað í hvítvíni :) og
auðvitað náði Helena alveg að bræða þau uppúr skónum með
sólskinsbrosinu!
Spurning að ég fari að setja inn svona lítinn Helenudálk með fréttum af henni...:$
En núna er skvísan alveg að verða 5 mánaða, líður rosalega vel og
staldrar mjög stutt í hverri fatastærð (góður mömmurjóminn). Í gær
fékk hún í fyrsta sinn að prufa eitthvað annað bragð en mjólkina þegar
við gáfum henni bananagraut, þó að hún japlaði bara á svona 1-2
teskeiðum þá virtist henni líka ágætlega, grautnum var allavega ekki
skilað tilbaka ;)
Hvernig er fólk annars að fíla að lesa hvítt á svörtu?


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 637 dögum
Förum til Flórída
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Myndasíða